top of page
Search

Hálsrígur - hvað er til ráða?

Updated: Oct 31, 2025

Hálsrígur lýsir sér sem verkur eða stífleiki í hálsi ásamt því að hreyfigetan í hálsinum verður takmörkuð. Fólk fær oft hálsríg eftir hafa sofið næturlangt í ”rangri líkamsstöðu” eða eftir skyndilega hreyfingu á hálsinum.


Afhverju fær fólk hálsríg?


Hálsrígur er svipað fyrirbæri og þegar fólk talar um þursabit í bakinu. Það læsist skyndilega í hálsinum og maður á erfitt með að snúa höfðinu til hliðar ásamt því að halla höfðinu fram og aftur. Orsökin að fá hálsríg getur verið margþættur. Oft fær fólk hálsríg þegar það setur ákveðið álag á hálsinn sem það ræður ekki við og með tímanum getur það orsakað hálsríg.


Hvað er til ráða til að koma í veg fyrir að fá hálsríg?  


Að fá meðhöndlun hjá fagaðila einnig geta styrktar- og liðlosunar æfingar minnkað líkurnar á því að fólk fái hálsríg. Við meðhöndlun hjá naprapata er byrjað að framkvæma ítarlega skoðun til að greina rót vandans. Út frá niðurstöðunum meðhöndla ég liði og vöðva til þess að minnka spennu og auka hreyfigetu í vöðvanum/vöðvunum sem eru að gefa frá sér verki. Aðferðir sem ég nota er t.d. drop-tækni, hnykkingar, meðhöndlun á mjúkvef/bandvef ásamt sérsniðnum æfingum. Það er mikilvægt að finna upptök vandans, ef hálsinn stífnar upp út af læsingu í brjóstbaki/efra baki þá þarf að meðhöndla bæði hálsinn og brjóstbakið. Í því tilviki er fókusað á að losa um efra bakið og auka hreyfigetuna í vöðvunum og liðunum sem eru að orsaka verki upp í háls.


Hér eru fjórar æfingar til þess að fyrirbyggja hálsríg og til þess að losna við hálsríg eins fljótt og auðið er:


Æfing 1 - snúningar á háls liggjandi á bakinu, einungis að verkjarmörkum, ekki inn í verkinn!!! https://www.youtube.com/shorts/LeqBC4z_kuA


Æfing 2 - Styrktaræfing fyrir efri hryggjarliðina í hálsinum. https://www.youtube.com/shorts/WSQtsjV1mE0


Æfing 3 - Liðlosunar æfing fyrir efra bakið. Andar inn þegar þú ferð í kryppuna og andar út þegar þú fettir bakið. https://www.youtube.com/watch?v=lmKhCTz0y8w


Æfing 4 - Teygja á brjóstakassa https://www.youtube.com/shorts/nex2MUebk0M


Hversu lengi er fólk með hálsríg?

 

Það er mismunandi eftir einstaklingum. Mikilvægt er að reyna að slaka á þegar verkurinn er sem mestur og reyna síðan hægt og rólega að byrja aftur að gera einfaldar æfingar til þess að koma sér út úr þessum vandræðum. Yfirleitt tekur það 4-7 daga að losna við hálsríg, en það er einstaklingsbundið eins og ég nefndi hér að ofan.

 

Þarft þú aðstoð með þinn hálsríg? Hafðu þá samband:)

 
 
 

Comments


bottom of page